Þrír af stærstu lífeyrissjóðum landsins fjárfestu ekki í sjóðum gamma en um er að ræða Lífeyrissjóður verzlunarmanna, LSR og Gildi. Þetta kemur fram á Kjarnanum. Þar er vitnað í vefsíðu Gildis en á síðunni segir:
„ ... í ljósi fjölmiðlaumfjöllunar síðustu daga um málefni Gamma Capital Management og fyrirspurna sem Gildi hafa borist þykir sjóðnum rétt að upplýsa að Gildi hefur ekki fjárfest í sjóðum Gamma.“
Þá óskaði Kjarninn eftir upplýsingum frá LSR og og Lífeyrissjóðs verzlunarmanna og líkt og Gildi höfðu þeir ekki fjárfest í neinum sjóðum Gamma. Í frétt Kjarnans segir enn fremur að Tryggingafélagið VÍS hafi sent frá sér aðkomuviðvörun. Margháttaðar ástæður eru fyrir því en þar vegur þyngst að VÍS átti hlutdeildarskírteini í sjóðnum GAMMA: Novus, sem var færður niður í fyrradag um milljarða króna. Niðurfærsla VÍS vegna þessa nemur 155 milljónum króna.