Geta brotið af sér án afleiðinga

Heiðar Guðjónsson, stjórnarformaður Sýnar, er eigandi fjárfestingarfélagsins Ursus, sem Seðlabanki Íslands kærði fyrir að brjóta lög um gjaldeyrismál árið 2010. Heiðar rekur þetta í aðsendri grein í Fréttablaðinu í dag, en hann segir að félagið hafi verið ranglega ásakað, líkt og Samherji:

„Seðlabanki Íslands kærði félag mitt, Ursus ehf., ranglega fyrir að brjóta lög um gjaldeyrismál árið 2010 þegar Ursus var hæstbjóðandi ásamt öðrum í opnu söluferli Sjóvár. Sérstakur saksóknari féllst ekki á málatilbúnað Seðlabankans og lét málið niður falla. Seðlabankinn kærði ákvörðunina til ríkissaksóknara sem staðfesti ákvörðun sérstaks saksóknara með löngu skammarbréfi til bankans. Félag mitt hafði engin lög brotið og einungis fært íslenskar krónur á milli reikninga í Íslandsbanka.“

Slapp í þetta skiptið

Heiðar segir Seðlabankann hafa stofnað til fjölda mála sem hafi skaðað fólk og fyrirtæki, en hafi orðið að bakka með þau á endanum:

„Ríkissaksóknari benti m.a. á, að það færi gegn stjórnarskrá að beita mig viðurlögum vegna þessara viðskipta. Eftir að niðurstaðan lá fyrir boðaði Seðlabankinn æðsta handhafa ákæruvalds í landinu á sinn fund og sagði við fjölmiðla að í niðurstöðu ríkissaksóknara kæmi fram „grundvallarmisskilningur varðandi eðli fjármagnshreyfinga og framkvæmd gjaldeyrishafta, enda um flókið sérfræðimálefni að ræða“! Í samtali við blaðamann sagði svo fulltrúi Seðlabankans: „Hann slapp í þetta skiptið.“ Þessi orð hafa síðan verið endurtekin oftsinnis, nú síðast í tilfelli Samherja, og lýsa forherðingu Seðlabankans. Það er fjöldinn allur af málum sem Seðlabankinn hefur stofnað til sem hafa skaðað einstaklinga og fyrirtæki. Þeir hafa kært tugi mála en orðið afturreka með þau öll.“