„Ef ég geng með hjólbörurnar eins og ég sé að hella úr þeim þá fæ ég ekki verki í axlirnar.“
Þetta segir Hugi Garðarsson, 21 árs gamall piltur sem ætlar í sumar að ganga hringinn í kringum landið til styrktar Krabbameinsfélagi Íslands. Hann gerir ráð fyrir því að vera um 100 daga á leiðinni, heimsækja 70 sveitarfélög og ganga á bilinu 3.000 til 3.500 kílómetra.
Frá þessu er greint í fréttatilkynningu frá Krabbameinsfélaginu.
Hugi mun ganga með allt sitt dót í hjólbörum sem hann hefur búið hliðarspeglum og þverstöng til að auðvelda gönguna á þjóðvegum landsins. Í hjólbörunum geymir hann allt sem þarf til ferðalagsins; tjald, svefnpoka, matarbirgðir, bækur og gítar sem hann spilar á daglega.
Allt hafurtask Huga er í hjólbörunni
Hugi hefur áður gengið hringinn í kringum landið, en þá fjárfesti hann í hjólbörum á Akureyri og gekk með þær til Reykjavíkur.
„Það er miklu auðveldara að labba með hjólbörur ef maður lyftir þeim upp og allur þunginn hvílir á dekkinu. Með hjólbörum næ ég léttilega að ganga allt að 35 kílómetra á dag, en án þeirra eru það aðeins 20-25 kílómetrar,“ segir Hugi.
Hann segist oft vekja athygli með hjólbörurnar og að alltaf sé einhver sem hægi á sér til að taka mynd, þótt hann hvetji fólk ekki til að hægja of mikið á sér og skapa þannig hættu í umferðinni á þjóðvegum landsins.
Gengur í minningu ömmu sinnar
Hugi lagði af stað frá Krabbameinsfélaginu í Skógarhlíð í dag klukkan 14 til minningar um ömmu sína sem lést úr krabbameini árið 2014.
„Lát hennar var okkur fjölskyldunni afar þungbært, sérstaklega afa mínum. Ég ætla að fara hringinn réttsælis, heimsækja um 70 bæjarfélög og hlakka til að kynnast landinu á göngunni um leið og ég legg góðum málstað lið,“ segir Hugi.
Hann hvetur alla til að hringja í söfnunarsíma Krabbameinsfélagsins því flestir þekki einhvern sem hefur kljáðst við krabbamein. Söfnunarsíminn er 908-1001 fyrir 1.000 krónur.
Hugi verður einn á ferð og hægt er að fylgjast með ferðum hans á Facebook síðu göngunnar.