Gengisfestan er forsenda þjóðarsáttar

\"Við höfum tækifæri núna. Það er ekki víst að það komi aftur í bráð,\" skrifar Þorsteinn Pálsson í nýjasta pistli sínum á Hringbraut þar sem hann fjallar um það sem er í húfi í kosningunum á laugardag.

Hann bendir á að verðmætasköpun og hagur jafnt heimila og fyrirtækja aukist vart og verði ekki á pari við samanburðarlöndin nema úr sér gengnum gjaldmiðli verði skipt út fyrir nothæfan; markmiðið sé \"að ná stöðu grannlandanna þannig að unnt reynist að auka kaupmátt með jafn mikilli vinnu. Stöðugur gjaldmiðill er eitt af skilyrðunum fyrir því að þetta sé hægt. Það er heldur ekki unnt að eyða þeirri mismunun sem nú ríkir, þar sem sumir geta starfað utan krónuhagkerfisins en aðrir ekki, nema með kerfisbreytingu.\"

Ekki sé þó víst að þessu verði breytt þótt flokkar sem kenni sig við umbætur og kerfisbreytingar taki við eftir helgi: \"Málefnastaðan er sú að stjórnarflokkarnir og VG andæfa kerfisbreytingu. Viðreisn, Björt framtíð og Samfylking hafa talað fyrir breytingum. Samtöl Samfylkingar og Bjartrar framtíðar við Pírata og VG benda aftur á móti ekki til að þetta lykil mál í stjórn efnahagsmálanna verði sett sem skilyrði fyrir stjórnarþátttöku,\" skrifar Þorsteinn í dag.

Hann bendir á að vandinn sem við blasi sé brýnn: \"Ríkisstjórnin skilur við vinnumarkaðinn í uppnámi. Forystumenn launafólks tala um verkfallsátök í byrjun næsta árs. Gerist það er veruleg hætta á að það sem áunnist hefur fari forgörðum,\" meinar Þorsteinn og rifjar upp að ríkisstjórnin sem nú sé að fara frá hafi lofað Alþýðusambandinu og Samtökum atvinnulífsins að skoða nýja stefnu í peningamálum þegar hún tók við 2013: \"Hún lofaði þá að skipa starfshóp til að vinna að breyttri peningastefnu. En einhverra hluta vegna sveik hún það loforð,\" skrifar Þorsteinn og minnir á að stöðugleiki í gengismálum sé ávinningur fyrir alla; sagan kenni okkur það.

Og hann rifjar upp: \"Þegar þjóðarsáttin var gerð 1990 sannfærðu aðilar vinnumarkaðarins þáverandi vinstri stjórn undir forystu Steingríms Hermannssonar til að ákveða fastgengisstefnu. Tvær næstu ríkisstjórnir undir forystu Davíðs Oddssonar héldu því striki að mestu. Fyrir vikið varð tíundi áratugurinn einn sá hagfelldasti á síðustu öld. Þar komu líka til kerfisbreytingar í sjávarútvegi og aðild að innri markaði Evrópusambandsins.\"

Hann segir að gengisfestan sé forsenda þjóðarsáttar fyrr og nú: \"Eigi SALEK-samkomulagið að verða að veruleika nú er gengisstöðugleiki forsenda þess að það virki eins og aðilar vinnumarkaðarins kölluðu eftir fyrir þremur árum. Ef menn nota ekki tækifærið við stjórnarmyndun nú til að knýja fram breytingar er hætt við að upplausnin sem blasir við að öllu óbreyttu eftir áramót sendi landið í enn eina óvissuferðina,\" skrifar þessi reynslumikli stjórnmálamaður sem man tímana tvenna í efnahagssögu Íslands.

\"Aðstæður eru einstaklega góðar til að stíga þetta skref nú,\" skrifar hann undir lok greinar sinnar - og bætir við: \"Verðbólga er lítil eins og sakir standa. En það sem mestu skiptir er að í dag ráðum við yfir öflugum gjaldeyrisvarasjóði sem er grundvöllur kerfisbreytingar af þessu tagi. Nái upplausnin yfirhöndinni á vinnumarkaðnum eftir áramót breytast þessar aðstæður fljótt. Þá er tækifærið farið.\"

Það er í þessu ljósi sem það liggur í augum uppi að einmitt þetta viðfangsefni verður að vera uppistaðan og ívafið í samningum um næstu ríkisstjórn ef vel á að vera. Það er ekki unnt að skjóta því inn í framtíðina.

Viðreisn hefur kynnt kerfisbreytingu með myntráði til þess að ná þessu markmiði. Annar kostur væri aðild að evrópska myntbandalaginu. Hún gæti verið pólitískt snúnari á þessum tímapunkti.

Sennilega þarf breiða ríkisstjórn sem hefur trúnað bæði samtaka launafólks og atvinnulífs til þess að koma þessu stóra máli áfram. Ef menn hugsa í raun um lífskjör og undirstöður velferðarkerfisins til lengri tíma er þetta stærsta málið sem kosningar og stjórnarmyndun eiga að snúast um.

Við höfum tækifæri núna. Það er ekki víst að það komi aftur í bráð.