Gengið til samninga um uppbyggingu nýs hótels í þjórsárdal - verður um fimm þúsund fermetrar

Forsætisráðherra veitti í dag samþykki sitt fyrir því að Skeiða- og Gnúpverjahreppur gangi til samninga við Rauðakamb ehf. um uppbyggingu hótels í hlíðum Rauðakambs í Þjórsárdal innan þjóðlendu sem nefnist Búrfells- og Skeljafellssvæði. Ætlunin er að reisa 5.000 fermetra hótelbyggingu og baðaðstöðu sem geti rúmað á bilinu 40 til 45 herbergi eða fyrir um 100 gesti.

Mannvirkin eiga að vera felld að landslagi á smekklegan hátt og tryggt að umfang bygginga, húsagerð, form og litasamsetning verði í góðu samræmi við landslag og sérstöðu svæðisins. Mannvirkin verða húðuð með efni af staðnum og valdir litir og efni í samræmi við nærumhverfi, auk þess sem ljósmengun verði lágmörkuð, einkum útilýsing. Þetta er í samræmi við leiðarljós sem fram koma í stefnu sem forsætisráðuneytið hefur sett um það hvernig standa skuli að uppbyggingu mannvirkja innan þjóðlendna. Einkum að virðing skuli borin fyrir náttúrulegu landslagi, gætt sé að óbyggðaupplifun við hönnun og staðsetningu mannvirkja, að þau falli að umhverfi og að hönnun þeirra sé látlaus, sérstaklega á viðkvæmum svæðum.

Ráðuneytið segir að í samskiptum sínum við samningsaðila verði lagt áherslu á að leitast verði við að tryggja aðgengi almennings að þeirri aðstöðu sem boðið verður upp á á svæðinu og að verðlagning hennar verði eins sanngjörn og kostur er. Á það við um aðgengi að baðaðstöðu, veitingaþjónustu og gistiaðstöðu.