Veðurstofan greinir vegsummerki eftir skýstróka en mikið tjón varð á bænum Norðurhjáleigu í Álftaveri. Um þetta má lesa á vef Veðurstofunnar
Föstudaginn 24. ágúst sl bárust fregnir af miklu tjóni á bænum Norðurhjáleigu í Álftaveri sökum skýstróka sem gengu yfir jörðina síðdegis. Þegar að var komið lá mikið brak úr nálægum útihúsum á víð og dreif um jörðina, ásamt því að pallbíll með kerru hafði fokið ofan í skurð, og stafn bragga sem á jörðinni stóð gekk mjög langt inn í hús.
Fjórum dögum seinna fóru tveir veðurfræðingar á Veðurstofunni til að skoða ummmerkin.
Af öllum vegsummerkjum að dæma er augljóst að þarna gekk mikið á. Stórt brak barst langt frá upphaflegum stað, þök rifnuðu og stafninn og þakið á reykkofanum fauk og hefur ekki fundist. Af lýsingum Kristbjargar á Þykkvabæjarklaustri var um þrjá stróka að ræða, tveir ollu tjóninu á bænum, en sá þriðji kom ekki að Norðurhjáleigu. Hann náðist hins vegar á mynd.