Gamma setur söluna í uppnám: „við vísum því alfarið á bug að óeðlilegar greiðslur hafi borist til okkar“

Ásmundur Ingvarsson, framkvæmdastjóri Ferils verkfræðistofu, segir í samtali við Fréttablaðið að kostnaðar­áætlun sem fyrirtækið vann fyrir Upphaf fasteignafélag vegna verkefnis á Kársnesi sé í takt við framvindu verksins. Þá heldur hann fram að mat fyrirtækisins hafi verið virt af vettugi og það hafi verið farið eftir annarri kostnaðaráætlun en samin var innan Upphafs. Sú kostnaðaráætlun hafi verið verulega vanáætluð. Þetta kom fram í Fréttablaðinu í morgun.

Í Fréttablaðinu er einnig vitnað í að í byrjun vikunnar hafi verið greint frá því að staða tveggja fjárfestasjóða sem eru í rekstri GAMMA, GAMMA: Novus og GAMMA: Anglia hafi verið allt önnur en gert var ráð fyrir.

Þannig var eigið fé GAMMA: Novus sagt um síðustu áramót vera 4,4 milljarðar. Milljarðarnir breyttust síðan í 42 milljónir króna í þessari viku. Þessi válegu tíðindi hafa vakið mikla athygli þar sem talið var að sjóðurinn stæði vel. Um leið kom fram að verulegar eignir eru í félaginu, meðal annars 277 íbúðir sem eru í byggingu, en rúmlega hundrað íbúðanna eru í byggingu að Hafnarbraut 12 á Kársnesi. Sala á íbúðum átti að hefjast í haust en sú staða sem upp er komin setur það allt í uppnám.

Þá segir einnig á vef Fréttablaðsins og vitnað er í tilkynningu frá GAMMA

„ ... að kostnaður við framkvæmdir verkefna Upphafs, þar á meðal við Hafnarbraut 12, hafi verið vanmetinn og að raunframvinda verkefna félagsins hafi verið ofmetin.“

Þá hefur verið greint frá því í Markaðnum á Fréttablaðinu að til stæði að kanna greiðslur til félaga sem komu að verkefnum Upphafs, meðal annars verkfræðistofunnar, vegna vafa um hvort eðlilega hafi verið að þeim staðið. Ásmundur Ingvarsson, framkvæmdastjóri segir í samtali við Fréttablaðið:

„Við vísum því alfarið á bug að óeðlilegar greiðslur hafi borist til okkar og skiljum ekki hvaðan sú umræða kemur. Það er rétt að við gerðum kostnaðaráætlun vegna verkefnisins á Hafnarbraut. Sú kostnaðaráætlun er raunsæ en það var ekki farið eftir henni. Stjórnendur Upphafs sömdu aðra kostnaðar­áætlun innanhúss sem hefur ráðið för og virtu okkar mat að vettugi.“

Þá sagði Máni Atlason, nýráðinn framkvæmdastjóri GAMMA, að hann gæti ekki tjáð sig um málið að svo stöddu.

Ítarlega er fjallað um málið í Fréttablaðinu.