Fyrsta skóflustungan tekin við leirtjörn

Fyrsta skóflustungan var tekin á nýju byggingarsvæði við Leirtjörn í Úlfarsárdal í gær. Bjarg íbúðafélag mun byggja 83 íbúðir í tveimur byggingum á lóð sinni í Leirtjarnarlandinu sem er undir Úlfarsfellinu.

Framkvæmdir á svæðinu hefjast strax í næstu viku. Bjarg er langt komið með uppbyggingu á öðrum 83 íbúðum við Urðarbrunn 130-132 í dalnum en félagið reisir hagkvæmar leiguíbúðir fyrir félagsmenn verkalýðsfélaganna sem standa að því. Skóflustunga að þeim blokkum var tekin í lok apríl 2018 þannig að það hefur verið góður gangur í framkvæmdunum. Við Leirtjörn hefur verið skipulagður nýr hverfishluti í Úlfarsárdal en þar verða 400 íbúðir og er allt til reiðu að hefja uppbygginguna.

Byggðin við Leirtjörn verður vistvæn að því leyti að notast verður við blágrænar ofanvatnslausnir og öllu yfirborðsvatni verður veitt í sjálfa Leirtjörnina. Þar í kring hefur verið skipulagt frábært útivistarsvæði. Að auki eru ótal möguleikar til útivistar í hinu nýja hverfi, t.a.m. göngur á Úlfarsfell og inn dalinn svo eitthvað sé nefnt eða meðfram Úlfarsánni sem er lax- og silungsá.

Land verður mótað þannig að Leirtjörn fær fasta bakka og rennsli frá henni verður stýrt um farveg í gilinu austan byggðarinnar niður í Úlfarsá. Tilgangurinn með því er að tryggja stöðugleika á vatnsborði tjarnarinnar. Gert er ráð fyrir góðum göngu- og hjólastígum sem tengist stígakerfinu í Úlfarsárdal. Leitast verður við að endurheimta náttúrulegt gróðurlendi með víðikjarri og engjagrasi.