„Jæja, fyrsta frostið er mætt,“ segir Einar Sveinbjörnsson veðurfræðingur á Facebook-síðu sinni. Hann birtir skjáskot þar sem sjá má að kólnaði niður fyrir frostmark á tveimur stöðum á hálendinu um klukkan 23 í gær. Sólin hefur leikið við Íslendinga síðustu vikur en nú eru ummerki um að styttist í haustið. Það er farið að kólna. Einar segir:
„Fyrsta frostið í komandi kuldakasti með N-átt og úrkomu norðan heiða,“ segir Einar og bætir við: „Tók líka eftir því hve kólnaði við Húnaflóa um leið og norðanáttin gerði vart við sig. Fór úr 7,8 í 4,8°C á Blönduósi frá miðjum degi og þar til í kvöld.“
Þá segir Einar að kuldakastið muni vara í einhvern tíma. Einar hefur þetta að segja:
Kuldakaflinn verður nokkuð svæsinn um tíma og kemur til með að vara langt fram í næstu viku skv. veðurspám og þess vegna eitthvað lengur.