Fyrrverandi tengdamóðir sigurðar ákærð

Héraðssaksóknari hefur ákært konu fyrir meiriháttar skattalagabrot í rekstri fyrirtækisins SS Verk. Hún er fyrrverandi tengdamóðir Sigurðar Kristinssonar sem var í desember sakfelldur fyrir skattsvik í rekstri fyrirtæksins. Hann var einnig sakfelldur í febrúar fyrir stórfellt fíkniefnasmygl. Konan og maður einn eru einnig ákærð fyrir brot gegn lögum um einkahlutafélög. Þetta kemur fram á RÚV.
 

Samkvæmt ákæru sveik konan 53 milljónir króna undan skatti meðan hún var daglegur stjórnandi fyrirtækins og stjórnarmaður um skeið. Þar af eru 32,5 milljónir króna vegna þess að fyrirtækið stóð ekki skil á virðisaukaskatti sem það innheimti árið 2016. Þar við bætist 21 milljón króna í opinberum gjöldum sem fyrirtækið hélt eftir af launum starfsmanna en skilaði ekki inn til ríkissjóðs.

Hún og maðurinn eru jafnframt ákærð fyrir brot gegn lögum um einkahlutafélög. Samkvæmt ákæru tók maðurinn til málamynda við stjórn félagsins af konunni. Þau voru upphaflega ákærð ásamt Sigurði en málin aðskilin og ákæra á hendur konunni og manninum gefin út á ný.

Nánar er fjallað um málið á RÚV.