Fyrrverandi forystumönnum ýtt út í kuldann

Fyrrverandi þingmenn Samfylkingarinnar í Reykjavík verða hvergi á framboðslistum fyrir komandi þingkosningar.

Þetta eru þau Helgi Hjörvar, Sigríður Ingibjörg Ingadóttir, Valgerður Bjarnadóttir og Össur Skarphéðinsson.

Ekki er vitað hvort þau hugðust sækjast eftir sæti á framboðslista, en allt að einu er þetta niðurstaða flokksfélaga í Reykjavík.

Hefð er fyrir því að fyrrverandi forystumenn skipi neðstu sæti á listum, svokölluð heiðurssæti, en þau sæti eru ekki einu sinni í boði að þessu sinni.

Samkvæmt upplýsingum Hringbrautar hefur þingmönnunum fyrrverandi þegar verið tilkynnt um þessa skipan mála.

Össur Skarphéðinsson var árum saman formaður og ráðherra flokksins. Hringbraut er ekki kunnugt um að fyrrverandi formanni nokkurs flokks hafi áður verið hafnað í heiðurssæti á framboðslista.

Rökstuðningur fyrir þessari ákvörðun mun vera að með þessu geri Samfylkingin skýr skil á milli fortíðar og framtíðar.

Eins og fram kom í frétt Hringbrautar í dag munu bæði Samfylking og Sjálfstæðisflokkur stilla upp framboðslistum á suðvesturhorninu, þvert á prófkjörshefðir, vegna tímaskorts.

Hjá Sjálfstæðisflokknum er hins vegar fastlega búist við því að framboðslistar verði óbreyttir frá því alþingiskosningum í fyrra.