Fylgir alfarið ráðgjöf hafró

Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, hefur gefið út reglugerð um leyfilegan heildarafla í íslenskri fiskveiðilögsögu fyrir næsta fiskveiðiár og fylgir hún alfarið ráðgjöf Hafrannsóknastofnunar.

Í ráðgjöf Hafrannsóknastofnunar kemur fram að staða margra helstu nytjastofna er sterk og því samfara verða aflaheimildir fyrir ýsu og ufsa auknar verulega auk þess sem aflaheimildir fyrir þorsk og steinbít verða auknar nokkuð. Aftur á móti verður dregið úr aflaheimildum fyrir íslenska sumargotssíld og gullkarfa enda mældist ástand þessara stofna veikt.

 Haft er eftir Kristjáni Þór Júlíussyni, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra á vef stjórnarráðins:

“Sjálfbær nýting auðlinda hafsins byggð á vísindalegri ráðgjöf er lykilatriði í fiskveiðistjórnun okkar Íslendinga. Þessi stefna hefur skilað þeim árangri að margir af okkar helstu nytjastofnum eru að styrkjast. Um leið er þessi stefna ein meginforsenda þess að íslenskur sjávarútvegur er í fremstu röð. Til að viðhalda þeirri stöðu og sækja fram er mikilvægt að við treystum undirstöður vísindalegrar ráðgjafar með því að efla hafrannsóknir enn frekar líkt og kveðið er á um í stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar.”

Í töflunni hér að neðan má sjá heildaraflamark fyrir einstakar tegundir. Þess ber að geta að aflamark fyrir mikilvæga uppsjávarstofna verður ákveðið á haustmánuðum.

 

\"\"