Björn Bjarnason, formaður starfshóps stjórnvalda um kosti og galla EE-samningsins er þungorður í garð þeirra stjórnmálamanna á Íslandi og Noregi sem vilja þyrla upp moldviðri um áhrif þriðja orkupakka ESB á íslenskt samfélag.
Annars vegar reyni þeir norsku stjórnmálamenn sem urðu undir í heimalandi sínu um orkupakkann að skapa ótta á meðal Íslendinga í þessum efnum og hins vegar reyni íslenskir pólitíkusar að halda fram eins miklum rangindum og þeir komist yfir til að vara við pakkanum, sem í reynd feli ekkert í sér sem Ísland þurfi að hafa áhyggjur af; það liggi ítrekað fyrir, enda margskoðað og rannsakað, bæði fyrir og eftir að ríkisstjórn Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar með Gunnar Braga Sveinsson í utanríkisráðuneytinu opnuðu fyrir innleiðingu pakkans.
Björn er viðmælandi Sigmundar Ernis í fréttaþættinum 21 í kvöld og fer þar hörðum orðum um andstæðinga orkupakkans, segir þá stunda fullkominn spuna - og talar þar inn í hópa í sínum eigin flokki, svo og Miðflokknum og hluta Framsóknarflokksins. Og hann hreinlega skilur ekki umræðu í þessum hópum sem láta að því liggja að hægt sé að segja skilið við EES-samninginn, sem virðist vera nýjasta pólitíska daðrið á Íslandi, slíkt færði tímann á Íslandi marga áratugi aftur í tímann, aftur fyrir EFTA-tímann í rauninni - og myndi skaða frjálsa verslun svo mjög að íslenskt efnahagslíf, ekki síst sjávarútvegur og ferðaþjónusta, myndi í besta falli stórlaskast.
Og svo megi menn heldur ekki gleyma því að EES-samstarfið geti styrkst að miklum mun gangi Bretar í það, sem að mati Björns er ekki ólíkleg millilending í Brexit-ferlinu.