Frítt í sund á morgun

Frítt verður í allar sundlaugar í Reykjavík á sumardaginn fyrsta ásamt því að aðgangur að Húsdýra- og fjölskyldugarðinum er ókeypis fyrir alla gesti. Skátarnir verða svo með hoppukastala og allskonar skemmtilegt skátafjör við sundlaugarnar og í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum á eftirfarandi tímum:

Árbæjarlaug kl. 13:00-16:00

Fjölskyldu- og húsdýragarð kl. 11:00-14:00

Grafarvogslaug kl. 13:00-16:00

Breiðholtslaug kl. 10:00-12:00

Sundhöll Reykjavíkur kl. 13:00-16:00

Laugardalslaug kl. 13:00-16:00

Vesturbæjarlaug kl. 11:00-13:00

Í Bústaðahverfi verða Víkingar með sumarhátíð, þar verður boðið upp á heitar pylsur, farið í skrúðgöngu, skemmtidagskrá í Bústaðakirkju og hopp og hí í félagsheimilinu Víkinni. 

Í Grafarholti hefst Framhlaupið í Leirdalnum klukkan 10.00, gestir fá að spreyta sig á frisbígolfi,  klukkan 11.00 verður dýrablessun í Guðríðarkirkju og klukkan 12.30 verður skrúðganga sem leggur af stað frá Sæmundarskóla, með lúðrasveit Grafarvogs og Grafarholts í broddi fylkingar. Boðið verður upp á alls kyns skemmtiatriði, Friðrik Dór tekur lagið og bingó.