Í fyrradag varð Freyja Haraldsdóttir enn á ný fyrir fordómum vegna fötlunar sinnar. Í pistli Einars Ísfjörð, sem tekur fyrir ákvörðun Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins um að slaka á inntökukröfum sínum, gerir hann lítið úr Freyju.
Í pistlinum gagnrýnir Einar ákvörðunina harðlega og segir ljóst að slökkviliðið telji sig ekki lengur hafa þörf fyrir jafn hæfa einstaklinga til að sinna starfinu og áður.
Í niðurlagi pistilsins skrifar hann: „Eigum við ekki að rúlla Freyju Haralds inn í inntökuprófið í leiðinni? Það er orðið nokkuð ljóst að hún þarf ekki að vera heima með barn á meðan borgin brennur.“
Þessari ómaklegu athugasemd svaraði Freyja á Facebook síðu sinni á kostulegan hátt: