Framsetning og fyrirsögn frétt Vísis í gær af samfélagsmiðlastjörnunum Gyðu Dröfn Sveinbjörnsdóttur og Þórunni Ívarsdóttur sem stofnuðu á dögunum fyrirtæki saman hefur verið gagnrýnd harðlega.
Gagnrýnin kom víða fram en í hópnum Fjölmiðlanördar á Facebook var fréttin rædd ítarlega og voru margir sammála því að hún endurspeglaði neikvætt viðhorf í garð athafnamennsku kvenna. DV greindi fyrst frá.
Fyrirsögn fréttarinnar „Ekki hræddar um að verða óvinkonur vegna fyrirtækisins“ hefur sætt sérstakri gagnrýni og voru margir handvissir því að hefðu tveir karlmenn stofnað fyrirtækið hefði fyrirsögnin aldrei hljóðað á þennan hátt.
Verslun vinkvennanna heitir Valhneta og þar hafa þær til sölu tréleikföng fyrir börn.
Upphafsinnlegg gagnrýninnar er skrifuð af Elfu og segir hún: „Þetta er stórundarleg fyrirsögn og staðsetning á frétt um tvær konur sem stofna fyrirtæki. Fréttin er ekki höfð í viðskiptahluta miðilsins, heldur undir Lífið. Rétt eins og þetta sé krúttlegt hobbí hjá stelpunum, en ekki svona alvöru strákaviðskipti. Kemur í kjölfarið á að Markaðurinn (fylgiblað Fréttablaðsins) birti myndir af 21 karli og engri konu í síðustu útgáfu. Gerið betur!“
Fréttastjóri Vísis, Kolbeinn Tumi Daðason svarar gagnrýninni og kemur blaðamanni sínum til varnar með svarinu: „Þetta eru flottar ábendingar. Eins og fram kemur þá er Markaðurinn unninn á annari ritstjórn en hjá okkur á Vísi þar sem ég er fréttastjóri. Blaðamaður sem skrifar þessar tvær greinar vinnur mest efni í Lífið og þess vegna rötuðu þessar tvær fréttir, sem hafa verið nefndar hér að ofan, líklega í þá flokka. Eftir ábendingarnar erum við búin að flytja þessar yfir í viðskiptin. Þar hafa allar fyrri fréttir okkar af Ígló verið og sömuleiðis langflestar fréttir af nýjum fyrirtækjum og sögum þar á bak við. Þær sögur eru reyndar oft þess eðlis að þær gætu eins átt heima í Lífinu. En þessar tvær áttu eftir á að hyggja betur heima í viðskiptum. Annars hvet ég ykkur til að lesa þetta viðtal við Gyðu Dröfn og Þórunni Ívars. Held að það sé fullt tilefni til þess að hrósa blaðamanni fyrir viðtalið og segja söguna á bak við fyrirtækið. Ég er augljóslega ekki hlutlaus í þessum efnum en viðkomandi blaðamaður hefur á okkar ritstjórn verið vel vakandi fyrir áhugaverðum verkefnum í samfélaginu, jafnt hjá konum sem körlum. Þessi frétt er dæmi um það. Það verða alltaf skiptar skoðanir á fyrirsögnum. Þær hefðu getað verið fjölmargar á þessu viðtali. Það er vel þekkt í viðskiptum að það getur vel farið illa að blanda saman vinskap og viðskiptum. Þannig að mér finnst þessi fyrirsögn jafn áhugaverð og hver önnur.“