Það er nokkuð merkileg frétt í Fréttablaðinu í dag. Þar segir af Matthíasi Imsland, sem meðal starfa á vegum Framsóknarflokksins, var aðstoðarmaður Eyglóar Harðardóttur, þegar hún var félagsmálaráðherra. Eygló breytti reglugerð um Íbúðalánasjóð sem þáverandi aðstoðarmaður hennar nýtir sér í dag. Síðast fékk hann 250 milljónir lánaðar og keypti sér heila blokk á Akranesi.
Í frétt Fréttablaðsins segir: „Hann keypti fasteignina af leigurisanum Heimavöllum í gegnum einkahlutafélag sitt, MPI ehf. Til þess að fjármagna kaupin fékk félag Matthíasar um 250 milljónir króna að láni til 50 ára frá Íbúðalánasjóði. Vaxtakjörin eru 4,20 prósent. [...] Meðal annars skulu lánin aðeins veitt til óhagnaðardrifinna leigufélaga. Ákvæði þess efnis er í stofnskrá fyrirtækis Matthíasar.“
„Matthías hefur áður nýtt sér þessa fjármögnunarleið til kaupa á ellefu íbúðum í Vestmannaeyjum á síðasta ári. DV og Stundin fjölluðu um kaupin á sínum tíma. Þar kom fram að Matthías var aðstoðarmaður Eyglóar Harðardóttur, félags- og húsnæðismálaráðherra, á árunum 2013-2016. Á þeim tíma undirritaði Eygló reglugerðina um leiguíbúðalán Íbúðalánasjóðs sem Matthías hefur síðan nýtt sér til að byggja upp óhagnaðardrifna leigufélagið sitt. Matthías hefur þó opinberlega þvertekið fyrir að hafa haft formlega aðkomu að Íbúðalánasjóði.“
Hér má lesa frétt Miðjunnar í heild sinni.