Flokknum hefur mistekist

Flokknum hefur mistekist að vinna sér traust kjósenda og þar af leiðandi beðið afhroð í kosningum. Þetta er í ályktun aðalfundar félagsins sl. mánudag.

Jafnframt segir að niðurstaða síðustu kosninga var sú versta í sögu flokksins. Framsóknaflokkurinn hafi tapað ellefu af nítján þingmönnum.

Ályktun félagsins lýkur með þeim orðum að félagið hvetji forystu Framsóknaflokksins til að íhuga alvarlega hvort forysta flokksins sé fær um að leiða flokkinn til þeirrar vegferðar sem sæmi Framsóknarflokknum.

Nánar á Facebook síðu Framsóknafélags Mosfellsbæjar