Fótbolti og þingmennska

 Eðlilega verður Evrópumótið og hin glæsilega frammistaða íslenska landsliðsins fyrirferðamikil í Þjóðbrautarþætti kvöldsins.

Guðmundur Steingrímsson alþingismaður og Hildur Dungal lögfræðingur verða fyrstu gestir þættisins. Willum Þór Þórsson alþingismaður og nýráðinn þjálfari KR mætir einnig. Hann svarar meðal annars hvernig þingmennska og þjálfun fara saman og hvort hann geti sinnt hvorutveggja með sóma.

Þjóðbraut er á dagskrá milli 21:00 og 21:30 í kvöld.