Á föstudaginn síðastliðinn lést amma Elizu Reid, forsetafrúr. Guðni Th. Jóhannesson, eiginmaður Elizu og forseti Íslands, minnist hennar á einlægan hátt og segir hana hafa verið lífsglaða og lífsreynda konu.
„Á föstudaginn lést amma Elizu minnar, Betty Brown (f. Nicolson). Hún féll frá í hárri elli, nær 102 ára að aldri. Betty var lífsglöð og lífsreynd, af skoskum ættum og sannfærð um að í henni rynni eitthvert norrænt blóð, enda fædd í Wick (Vík) á norðurströnd Skotlands þar sem norrænir menn gerðu strandhögg á víkingaöld og settust einnig að.
Betty þjónaði landi sínu í seinni heimsstyrjöld, var hjúkrunarkona í liði Kanadamanna á vígvöllum Evrópu. Ætíð var hún ljúf í lund og ég minnist hennar með mikilli hlýju. Blessuð sé minning Betty Brown,“
segir Guðni í færslu á Facebook síðu forsetans.