Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, fundaði með Vladímír Pútín, forseta Rússlands í morgun. Fundurinn var haldinn í tengslum við International Arctic Forum, alþjóðlegri ráðstefnu sem stendur nú yfir í Sankti Pétursborg í Rússlandi. RÚV.is greinir frá.
Guðni sagði að loknum fundi að samskipti ríkjanna hafi í gegnum tíðina verið gagnleg báðum og að hann væri bjartsýnn á að áframhald yrði á því. Samræðurnar í dag og í gær hafi sannað mikilvægi þess að hafa vettvang til að ræða samvinnu ríkjanna. Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, sat einnig fundinn.
Sjá einnig: Sjáðu Guðna tala rússnesku: Vakti mikla lukku - Myndband
Á norðurslóðaráðstefnunni í gær fóru fram pallborðsumræður um málefni norðurslóða. Guðni og Pútín tóku þar þátt ásamt Ernu Solberg, forsætisráðherra Noregs, Stefan Löfven, forsætisráðherra Svíþjóðar og Sauli Ninistö, forseta Finnlands.