Eliza ein á leik íslands og argentínu

El­iza Reid for­setafrú verður viðstödd lands­leik Íslands og Arg­entínu á heims­meist­ara­mót­inu í knatt­spyrnu í Moskvu á laug­ar­dag­inn en for­seti Íslands, Guðni Th. Jó­hann­es­son verður fjarri. Guðni mun halda  hátíðarræðu á Hrafns­eyri við Arn­ar­fjörð, fæðing­arstað Jóns Sig­urðsson­ar for­seta, í til­efni af ald­araf­mæli full­veld­is Íslands á laug­ar­dag­inn þegar Ísland leikur sinn fyrsta leik. Mbl.is segir frá.

Guðni forseti mun þó fylgj­ast með leik ís­lenska karla­landsliðsins í knatt­spyrnu á HM í  Moskvu sem varpað verður á tjald.