Fornfræg flugstöð í keflavík horfin

Gamla flugstöðin á Keflavíkurflugvelli er  horfin af yfirborði jarðar. Í frétt á vef Víkurfrétta, vf.is segir að ISAVIA hafi ráðist í það verk í vetur að láta rífa bygginguna og fyrirtækið ABLTAK fékk verkið eftir útboð. Á myndinni má sjá restina af þessari fornfrægu byggingu á Keflavíkurflugvelli.
 
Samkvæmt skipulagi fyrir Keflavíkurflugvöll mun rísa flugskýli þar sem flugstöðin stóð áður.
Sjónvarp Víkurfrétta fór í kynningarferð um gömlu stöðina áður en rifrildi á henni hófst í upphafi árs og ræddi við Friðþór Eydal, fyrrverandi blaðafulltrúa Varnarliðsins.

\"\"