Fór í brynvörðum bíl yfir götuna

Reynir Grétarsson, frumkvöðull og stjórnarformaður Creditinfo Group, er í stórskemmtilegu viðtali hjá Jóni G. í kvöld. Reynir hefur byggt upp alþjóðlegt fyrirtæki á rúmum tuttugu árum með veltu upp á um 4 milljarða króna og starfsemi í 26 löndum. Fyrirtækið er dæmi um frekar hljóðláta útrás sem hefur heppnast. Nýlega stóð hann að stofnun fyrirtækisins Svartigaldur sem þróar hugbúnaðarlausnir í markaðsgeiranum og sér um alhliða markaðssetningu á netinu. Þeir Jón G. koma mjög víða við í hressilegu viðtali en þar segir Reynir meðal annars frá því þegar hann fór af hóteli í Kabúl í Afganistan í Seðlabanka landsins sem stóð andspænis hótelinu við götuna. Ekki rölti hann yfir götuna heldur tók ferðin dágóða stund í brynvörðum bíl inn í bílageymslu bankans.