Flytur lykilfólk til parísar vegna brexit

Bank of America hefur hraðað undirbúningi sínum vegna Brexit með því að flytja þrjá háttsetta stjórnendur frá höfuðstöðvum bankans í Lundúnum til Parísar þar sem til stendur að efla fjárfestingabankastarfsemi í frönsku höfuðborginni.

Sanaz Zaimi, sem stýrir alþjóðlegri deild Bank of America fyrir skuldabréf, gjaldmiðla og hrávörur, mun flytja til Parísar til að stýra nýjum skrifstofum bankans þar en starfsemi bankans í borginni verður aukin verulega samkvæmt minnisblaði sem Financial Times hefur séð. 

Nánar vb.is;

http://www.visir.is/g/2018180629117/flytur-lykilfolk-til-parisar-vegna-brexit