Verðbólga mæld á tólf mánaða tímabili er 2,7% og er því yfir verðbólgumarkmiðum Seðlabanka Íslands annan mánuðinn í röð. Vísitala neysluverðs hækkað um 0,04% í júlí þrátt fyrir sumarútsölur. Vísitala neysluverðs án húsnæðis lækkar aftur á móti um 0,26% frá júní 2018.
Sumarútsölur hafa víða verið í gangi og lækkaði verð á fötum og skóm um 11,3% (áhrif á vísitöluna -0,41%). Kostnaður vegna búsetu í eigin húsnæði (reiknuð húsaleiga) hækkar um 1,0% (0,22%). Flugfargjöld til útlanda hækka um 23,0% (0,31%).
Nánar á
https://www.mbl.is/vidskipti/frettir/2018/07/23/flugfargjold_haekka_um_23_prosent/