Inga Sæland, formaður Flokks fólksins, segir flokkinn þann eina sem ekki hafi fengið boð á samtalsfund þingmanna og borgarfulltrúa, sem nú fer fram í Höfða í boði Dags B. Eggertssonar borgarstjóra. Hún mótmælir slíkum vinnubrögðum harðlega og segir enga afsökun finnast fyrir mismunun af þessu tagi.
Í stuttri yfirlýsingu segir hún:
„Í þessum skrifuðu orðum, er nýhafinn fundur í Höfða í boði Dags B. Eggertssonar borgarstjóra. Þetta mun vera samtalsfundur þingmanna og borgarfulltrúa. Allir sitjandi þingflokkar á Alþingi Íslendinga hafa fengið slíkt boð fyrir utan Flokk fólksins. Hér með mótmæli ég þessum vinnubrögðum harðlega. Það finnst engin afsökun fyrir þessari mismunun. Flokkur fólksins á bæði fulltrúa á þingi og í borgarstjórn.“