Viðbúnaður var talverður hjá lögreglu og slökkviliði í borginni. Umferð gekk greiðlega í úthverfi eftir miðnætti. Hrósa ber fyrir gott skipulag undirbúningsnefndar borgaryfirvalda og öðrum skipuleggjendum sem og lögreglu og slökkviliði.
Útköll lögreglu á laugardagsnótt eru allajafna um þrjátíu en voru að þessu sinni sextíu en margt um manninn í miðbæ Reykjavíkur í gær og í nótt.
Menningarnótt er miðborgarhátíð í orðsins fyllstu merkingu því sjaldan skrýðist miðborg Reykjavíkur litríkari og skemmtilegri skrúða en þennan dag.
Menningarnótt er hátíð sem haldin er árlega í Reykjavík fysta laugardag eftir afmæli borgarinnar hinn 18. ágúst. Menningarnótt er hátíð sem allir borgarbúar skapa og upplifa saman.
Nánar www.reykjavik.is