Tölur um fjölda ferðamanna og skráðar gistinætur haldast ekki í hendur líkt og raunin hefur verið.
Í ályktun stjórnar SAF segir að tölur hafa verið samræmdar undanfarin tvö ár en nú sé munur á. Ferðamönnum fjölgaði til landsins um rúmlega helming á fyrsta fjórðungi ársins miðað við sama tímabil í fyrra, eftir talningu Ferðamálastofu. Á sama tíma fjöldi gistinóttum aðeins um fjórðung.
Ástæðan fyrir ósamræminu er m.a. talin vera sú að mikil aukning hefur orðið á heimagistingu, en einnig að upplýsingar um gistinætur ná einvörðungu utan um gistinætur á hótelum sem opin eru allt árið.
Markaðsstofur landshlutanna hafa lengi barist fyrir því að tölfræðilegar upplýsingar verði efldar í hverjum landshluta.
Einnig er áætlað að ferðamönnum sem fara aldrei út úr Leifsstöð fari fjölgandi. Þannig fari fleiri út úr komusalnum með farangurinn og innrita sig aftur fyrir seinni legginn á leið sinni yfir hafið. Talning ferðamanna fer í gegnum vopnaleit en í hana fara líka þeir sem einungis millilenda í Leifsstöð.