Fjórtán kokkar hættir í kokkalandsliðinu

Fjórtán matreiðslumeistarar í kokkalandsliðinu hafa sagt sig úr því í mótmælaskyni við þá ákvörðun stjórnarinnar að gera samstarfssamning við Arnarlax. Frá þessu greindi einn landsliðsmaðurinn, Ylfa Helgadóttir, á Facebook-síðu sinni í kvöld. Sturla Birgisson, fyrrverandi þjálfari liðsins sagði sig fyrr í dag úr Klúbbi matreiðslumeistara vegna samningsins við Arnarlax. Fyrrverandi varaformaður klúbbsins mótmælir ákvörðuninni einnig.

Nánar á


http://www.ruv.is/frett/fjortan-kokkar-haettir-i-kokkalandslidinu