Ósóttar vörur sem dagað hafa uppi í vörumiðstöð Samskipa verða seldar á uppboði næstkomandi laugardag, 24. febrúar. Uppboðið er haldið af Sýslumanninum á höfuðborgarsvæðinu í aðstöðu vörumiðstöðvar Samskipa í Kjalarvogi 7-15 í Reykjavík og hefst klukkan ellefu árdegis.
„Þarna er um að ræða margvíslegan varning sem bæði einstaklingar og fyrirtæki hafa ætlað að flytja til landsins en af einhverjum ástæðum ekki lokið við að fá tollafgreiddan inn í landið,“ segir Björk Ágústsdóttir, innheimtustjóri Samskipa. Afrakstur uppboðsins fer upp í kostnað við flutning, umsýslu, geymslu og tollafgreiðslu varningsins.
„Þarna kennir ýmissa grasa, sumir hlutir eru í kassavís og aðrir stakir. Meðal þess sem boðið verður upp eru vinnutæki á borð við borvélar og vinnubúkkar, eldhúsáhöld fyrir iðnaðaeldhús, fjórhjól, sófar, fatnaður, sjónvörp og hátalarar og ótal hlutir aðrir,“ segir Björk. „Ef það langar einhvern í ósamsettan gervihnattadisk, 24 rása hljóðblandara, eða rafmagnshitara í gufubað, þá er tækifærið núna. Við vonumst í það minnsta til að sem flestir mæti.“
Í auglýsingu fyrir uppboðið er tekið fram að greiðsla fyrir hluti sem boðnir eru upp verði að vera í reiðufé eða með debetkorti, ekki sé hægt að borga með kreditkorti. Greiðsla fari fram við hamarshögg.