Alls bárust 720 tilkynningar um hegningarlagabrot á höfuðborgarsvæðinu í nóvember og hafði almennt heldur fækkað miðað við síðustu sex mánuði þar á undan. Færri tilkynningar bárust lögreglunni um þjófnaði, ofbeldisbrot, eignaspjöll, umferðarlagabrot og færri voru teknir við akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna. Þetta kemur fram í mánaðarskýrslu lögregluembættisins fyrir nóvember.
Innbrotum fjölgaði hins vegar í síðasta mánuði í borginni; innbrotum á heimili og í ökutæki fjölgaði mikið og hafa ekki borist jafn margar tilkynningar um innbrot á einum mánuði frá því í október 2011. Innbrotum í geymslur og bílskúra fjölgaði sem og innbrotum á heimili.
Nánar á
http://www.ruv.is/frett/mikid-um-innbrot-i-november