Fjölbýlishús í Reykjanesbæ verður byggt úr norskum timbureiningum á 7 mánuðum.
Modulbyggingar ehf., Moelven ByggModul AS og þróunarfélagið Klasi ehf., hafa undirritað samning um byggingu fyrsta fjölbýlishússins á Íslandi sem byggt er með einingahúsaaðferðum Moelven í Noregi. Húsið verður byggt í Reykjanesbæ, úr forsmíðuðum timbureiningum og tekur aðeins sjö mánuði í byggingu þar til íbúðir eru tilbúnar til afhendingar fullbúnar, á vel samkeppnishæfu kaupverði.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá Klasa og Modulbyggingum.
Fjölbýlishúsið sem Klasi byggir eru íbúðir sem eru fyrst og fremst ætlaðar fyrir eldri borgara enda í góðum tengslum við þjónustumiðstöðina á Nesvöllum. Byggingin sem nú er komin í framleiðslu verður á fjórum hæðum með 27 íbúðum, en alls er gert ráð fyrir að byggðar verði um 200 íbúðir á Nesvöllum til viðbótar á næstu árum.
Um er að ræða umhverfisvænar byggingar en áhersla er á að sú nálgun gangi í gegnum allt ferlið við byggingu og síðan notkun íbúðanna með því að huga að orkusparnaði. Húsin eru byggð innandyra við bestu aðstæður sem eykur gæði og minnkar sóun. Um er að ræða nýjung hér á landi sem hefur þó fengið mikla reynslu í Noregi við sambærilegar aðstæður og eru hér uppi. Moelven hefur framleitt húsin í yfir 100 ár.
Fyrsta skóflustungan verður tekin í dag og eiga íbúðirnar að verða tilbúnar til afhendingar í lok ársins.