Mikil gleði braust út þegar keppendur Fjölbrautaskólans í Garðabæ svöruðu rétt spurningu um rigningu og ljóst var að að þeir höfðu sigrað Kvennaskólannn í Reykjavík í úrslitakeppni Gettu betur, spurningakeppni framhaldsskólanna, í Háskólabíói í gærkvöldi. Þetta er í fyrsta sinn sem FG vinnur hljóðnemann, verðlaunagrip Gettu betur. Allur tilfinningaskalinn var notaður og keppnis- og stuðningslið FG ýmist hrópuðu eða grétu af gleði.
Sigurlið FG skipuðu þau Jóel Ísak Jóelsson, Guðrún Kristín Kristinsdóttir og Gunnlaugur Hans Stephensen. Þau sögðust hafa unnið að undirbúningi keppninnar á hverjum einasta degi í 6-7 tíma í rúmt hálft ár. Lið Kvennó sigraði keppnina í fyrra.
Sjá má fögnuðinn þegar úrslitin urðu ljós í myndbandi RÚV.