Fjögur börn greinst með alvarlega sýkingu af völdum e. coli bakteríunnar – tvö á spítala

Á undanförnum 2–3 vikum hafa fjögur börn greinst á Íslandi með alvarlega sýkingu af völdum E. coli bakteríu (STEC). Börnin sem sýktust búa öll á höfuðborgarsvæðinu en hafa öll líklega smitast í uppsveitum Árnessýslu eða nánar tiltekið í Bláskógabyggð en á þessari stundu er ekki ljóst hver uppspretta smitsins er. Frá þessu er greint í tilkynningu frá sóttvarnalækni.

Þar eru einstaklingar sem dvalist hafa undanfarnar 2–3 vikur í uppsveitum Árnessýslu (Bláskógabyggð) og veikst með blóðugum niðurgangi hvattir til að leita til læknis svo ganga megi úr skugga um hvort þeir hafi sýkst af STEC bakteríunni.

Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir segir í samtali við RÚV að tvö barnanna liggi á spítala og að hin tvö séu undir eftirliti utan spítala. Börnin fjögur eru á aldrinum fimm mánaða til sjö ára.

Matvælastofnun og heilbrigðiseftirlit Suðurlands vinna nú að því að greina uppruna sýkinganna og stöðva frekari útbreiðslu. Matvælastofnun greindi nýlega frá tilvist sjúkdómsvaldandi baktería í kjöti á markaði á Íslandi, þar sem kom fram að STEC bakteríur fundust í 30 prósent sýna af lambakjöti og 11,5 prósent sýna af nautgripakjöti. Auk þess geta bakteríurnar fundist í ógerilsneyddri mjólk.

Þórólfur ítrekar að unnið sé hörðum höndum að rannsókn málsins, en að rannsóknir á bakteríum taki alltaf nokkurn tíma. Verið sé að kanna sameiginlega fleti hjá öllum þessum börnum til að sjá betur hvaðan smitið gæti hafa komið. 

Í tilkynningu segir að fólk geti smitast af STEC með menguðum matvælum eða vatni, með beinni snertingu við dýr eða mengaðan úrgang dýra. Bakterían kemst þannig um munn og niður í meltingarveg og framleiðir eiturefni sem getur valdið blóðugum niðurgangi og í alvarlegum tilfellum nýrnabilun og blóðleysi (Hemolytic Uremic Syndrome).