Fíb reiknar út bílarekstur ásmundar

Það kostar rúmar tvær milljónir króna á ári að reka Kia Sportage-bíl þingmannsins Ásmundar Friðrikssonar, miðað við notkun hans á bílnum í fyrra, samkvæmt útreikningum Félags íslenskra bifreiðaeigenda (FÍB).Ásmundur fékk í fyrra 4,6 milljónir króna aksturskostnað endurgreiddan frá Alþingi.

 

Morgunútvarpið á Rás 2 fékk FÍB til að reikna hvað það kostaði að reka bíl eins og þann sem Ásmundur á í eitt ár. Niðurstaðan er sú að reksturinn, með fjármagnskostnaði, kostar 2,07 milljónir á ári, sem er tveimur og hálfri milljón króna minna en Ásmundur fékk í endurgreiddan aksturskostnað í fyrra. Væri bíllinn nýr næmi kostnaðurinn 2,44 milljónum á ári.

Bíllinn er Kia Sportage-jepplingur, fjórhjóladrifinn dísilbíll, sem kom nýr á götuna í mars 2016. Ásmundur keypti hann notaðan í desember sama ár. Bíll af þessari gerð kostaði í maí 2016 6,7 milljónir króna.

FÍB reiknar með að bíllinn falli meira í verði á ári hverju en meðalbíll, enda hefur komið fram að Ásmundur ekur mjög mikið. Í fyrra ók hann tæpa 48 þúsund kílómetra. Því reiknar FÍB með 18% verðfalli á milli ára, sem þýðir að ásett verð á bíl Ásmundar gæti í dag verið um 3,8 milljónir króna.

FÍB gerir ráð fyrir að bíllinn eyði 7 lítrum af dísilolíu á hverja 100 kílómetra, sem þýðir eyðslu upp á 3.335 lítra í fyrra, sem kosta tæplega 654 þúsund krónur. Þá er gert ráð fyrir 270 þúsund króna viðhaldskostnaði og 90 þúsund krónum í hjólbarða. Reiknað er með 160 þúsund krónum í tryggingar og 26 þúsund krónum í skatta og skoðun, svo vitnað sé beint í frétt RÚV af málinu .