Ferðamenn fái sannleikann um hreina vatnið

Umhverfis- og auðlindaráðuneytið og Umhverfisstofnun hafa samið um verkefni sem ætlað er að draga úr neikvæðum umhverfisáhrifum plastnotkunar.

Annars vegar er um að ræða verkefnið „Hreint vatn í krana“ sem snýst um kynningu til ferðamanna sem koma til Íslands um óþarfa þess að kaupa vatn í einnota umbúðum hér á landi. Vatn á Íslandi sé nánast alls staðar hreint og öruggt til neyslu og af notkun og flutningi plastflaskna hljótist óþarfa loftslagsáhrif og önnur neikvæð umhverfisáhrif. Hannað verður kynningarefni í takt við átakið „Turn the tap on“ og gert ráð fyrir að verkefnið verði unnið í samstarfi við atvinnulífið, frjáls félagasamtök, sveitarfélög, veitustofnanir og fleiri.

Hins vegar er um að ræða verkefni sem snýr að kynningu og fræðslu um ofnotkun á einnota plasti. Útbúið verður kynningar- og fræðsluefni fyrir vef- og samfélagsmiðla með skilaboðunum „Notaðu fjölnota“.

Um þetta má sjá meira hér.