Hljómsveitin Hatari flutti framlag Íslands, Hatrið mun sigra, í Eurovision söngvakeppninni nú kvöld. Hatari var sautjánda sveitin til að stíga á svið. Hatari stóð sig með miklum sóma en um miðbik lagsins virtist Mattíasi hafa orðið aðeins á. Tóku glöggir áhorfendur eftir þessu og tjáðu margir sig á Twitter. Líkt og komið hefur fram á DV hrapaði Hatari niður um þrjú sæti vegna þessa, úr fimmta niður í áttunda hjá veðbönkum.
Fram að þessu hafði verið bundnar miklar vonir við að Hatari yrði á meðal fimm efstu þegar talið yrði upp úr kössunum síðar í kvöld. Þrátt fyrir þessar úrtöluraddir eru flestir Íslendingar bjartsýnir á góðan árangur. Vísir náði tali af Felix Bergssyni sem gerði lítið úr þessum mistökum.
Sagði Felix að Matthías aðeins hafa farið úr takti í tvær til þrjár línur en annars hefði flutningur Hatara verið hnökralaus.
Á DV er bent á að samsæriskenningar séu nú á flugi á Twitter. Telja sumir sem þar tjá sig að Ísraelar hafi ákveðið að hefna sín á sveitinni vegna stuðnings þeirra við Palestínu. Þetta sé alls engin tilviljun. Arnór Jónsson segir:
„Ísraelar lögðust það lágt að reyna slátra in ear monitorunum hjá Hatara! #Losers #12stig.“
Þá segir Svavar Örn:
Þetta sound vesen og rugl hjá Hatari. Ekkert annað en NSO Group að störfum. Sama gildir með Eurovision appið.
Fleiri ummæli og frekari umfjöllun er að finna á DV.