Félagafrelsi starfsmanna virkar ekki í reynd gagnvart vinnuveitendum vegna forgangsréttarákvæðis. Það merkir að í samningum skuldbinda vinnuveitendur sig til að ráða fyrst og fremst starfsmenn skráða í verkalýðsfélögum. Þetta kemur meðal annars fram í fróðlegum þætti Jóns G. Haukssonar í kvöld.
Vinnumarkaðurinn hefur verið mála málanna að undanförnu. Verkföll eru frekar tíð á Íslandi, sérstaklega hjá opinberum starfsmönnum. Þá eru um 170 verkalýðs- og starfsgreinafélög á aðeins 200 þúsund manna vinnumarkaði. Bara á Landspítalanum eru um 30 stéttarfélög.
Í þættinum er einnig farið yfir einkenni, eðli og skipulag íslensks vinnumarkaðar, atvinnuástandið í skugga WOW - sem og umfjöllun um að Kvika-banki sé kominn af First North markaðnum yfir á aðalmarkað Nasdaq. Já, og hver er munurinn á Kviku og hinum bönkunum.
Gestir Jóns G. í kvöld eru Gylfi Dalmann Aðalsteinsson, dósent við HÍ, Geirlaug Jóhannsdóttir, rágjafi hjá Hagvangi og Ármann Þorvaldsson, bankastjóri Kviku-banka. Hringbraut kl. 20:30 í kvöld og á tveggja tíma fresti eftir það næsta sólarhringinn.