Félag vincent tan gengur frá kaupum á icelandair hotels

Í gær skrifaði stjórn Icelandair Group undir kaupsamning við Berjaya Property Ireland Limited vegna kaupa á Icelandair Hotels og tengdum fasteignum. Áður hafði verið greint frá því að Berjaya myndi kaupa 80 prósenta hlut en hluturinn er þó ögn lægri. Með kaupunum eignast félagið 75 prósent í Icelandair Hotels og mun Icelandair Group halda 25 prósentum. Berjaya félagið er stofnað af malasíska auð­kýfingnum Vincent Tan.

Frá þessu var greint í Fréttablaðinu í gær. Þar segir að heildarvirði Icelandair Hotels og tengdra fasteigna sé 136 milljónir Bandaríkjadala, sem jafngildir yfir 21 milljarði íslenskra króna.

Vincent Tan vakti athygli þegar hann keypti velska knattspyrnuliðið Cardiff City, sem íslenski landsliðsfyrirliðinn í knattspyrnu, Aron Einar Gunnarsson, hefur leikið með um átta ára skeið. Þar af voru tvö tímabil í ensku úrvalsdeildinni.

Tan lætur sig aldrei vanta á leiki og varð umsvifalaust umdeildur meðal stuðningsmanna Cardiff þegar hann breytti bláum búningum liðsins í rauða. Vildi hann með því vekja meiri ótta andstæðinga liðsins.

Tan er stjórnarformaður Berjaya og segir Icelandair Hotels vera öfluga viðbót við þau 19 hótel sem félagið hafi á sínum snærum. „Við hlökkum til þess að vinna með nýjum samstarfsaðila okkar að frekari vexti og viðgangi Icelandair Hotels,“ segir hann.

Árlegar tekjur Berjaya, sem er skráð á verðbréfamarkað í Malasíu og hefur yfir að ráða yfir fjögur þúsund starfsmönnum, eru í kringum 1,6 milljarður Bandaríkjadala.

Staðfesting á gæðum og virði félagsins

„Kaup Berjaya á Icelandair Hotels eru í senn staðfesting á gæðum og virði félagsins og björtum framtíðarhorfum íslenskrar ferðaþjónustu,“ segir Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair Group, í samtali við Fréttablaðið.

Hann segir félagið nú ætla að leggja áherslu á flugreksturinn, kjarnastarfsemi sína, og fagnar því aðkomu alþjóðlegs fjárfestis. Bogi þakkar einnig samstarfsfólki sínu fyrir vel unnin störf undanfarin misseri. „Ég vil nota þetta tækifæri til að þakka stjórnendum og starfsfólki Icelandair Hotels fyrir þeirra framúrskarandi starf við þróun og uppbyggingu öflugs hótelfélags sem hefur mikla þýðingu og virði fyrir íslenska ferðaþjónustu.“