Fataverslun hér á landi eykst

Fataverslun hér á landi hefur vaxið undanfarna mánuði. Kortavelta Íslendinga í innlendri fataverslun jókst um 300 milljónir í ágúst, eða rúm þrettán prósent, frá sama mánuði í fyrra. Þetta er til marks um ágætan kaupmátt landsmanna þessi misserin en opnun H&M verslunarinnar hér á landi kann einnig að skýra vöxtinn að hluta. 
 

Samkvæmt Rannsóknarsetri verslunarinnar nam innlend fataverslun tæpum 2,2 milljörðum í ágúst í ár en 1.9 milljörðum í sama mánuði í fyrra, samkvæmt kortaveltu.  Kortavelta í flokki fataverslanna hefur aukist um 17 prósent, eða sem nemur 1,6 milljörðum,  ef tímabilið apríl til ágúst 2018 er borið saman við sama tímabil í fyrra.  Netverslun Íslendinga hjá innlendum netverslunum sem selja fatnað jókst á sama tímabili um tæp 30 prósent og nam 379 milljónum samanborið við ríflega 11 milljarða í búðum. Netverslun nam því 3,4 prósentum af kortaveltu flokksins.

Nánar á

http://www.ruv.is/frett/fataverslun-her-a-landi-eykst