Stéttaskipting er staðreynd á Íslandi og ójöfnuður fer vaxandi. Þetta segir Vilborg Oddsdóttir í þættinum 21 í kvöld en hún er formaður EAPN á Íslandi, samtaka sem berjast gegn fátækt. Vilborg hefur verið í hjálparstarfi sem snýr að þeim sem sitja fastir í fátækt um áratugaskeið. Hún fagnar því að fólk stígi nú fram og segi frá þeim erfiðleikum sem fylgja því að ná ekki endum saman, að lifa í fátækt í landi alsnægta. Vilborg tengir opnun þessarar umræðu; að við fáum nú að heyra í fólkinu sjálfu, ekki bara milliliðum, við Me Too byltinguna.