Grunnur að fyrstu heildarstefnu ríkisins um almenningssamgöngur fyrir allt landið hefur verið mótuð og er nú til kynningar í samráðsgátt stjórnvalda. Meðal annars er lagt til að fargjöld í almenningssamgöngum verði lækkuð og þjónustan gerð aðgengilegri almenningi. Í nýrri samþykktri samgönguáætlun er gert ráð fyrir að fargjöld í innanlandsflugi verði lækkuð í þessu skyni. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu.
Starfshópur sem Sigurður Ingi Jóhannsson samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra skipaði leggur til að almenningssamgöngur með flugi, ferjum og almenningsvögnum myndi eina sterka heild og að boðið verði upp á eitt leiðarkerfi fyrir allt landið. Skilgreindar eru fimm stærri skiptistöðvar á landinu þar sem huga þarf að því að skipuleggja samgöngumiðstöðvar. Þær eru á höfuðborgarsvæðinu, Borgarnesi, Akureyri, Egilsstöðum og Selfossi. Sjö minni skiptistöðvar yrðu einnig í kerfinu fyrir afmarkaðri svæði.
Stefnt er að því að öllum upplýsingum um áfangastaði og tímasetningar í leiðarkerfi almenningssamgangna verði á einni sameiginlegri upplýsingagátt. Á þeim vef verði hægt að fá ferðatillögur í rauntíma, sem tengir saman mismunandi leiðir og ferðamáta og bjóði upp á kaup á farmiðum alla leið.
Markmið stefnunnar er að auka hlutdeild almenningssamgangna í ferðum milli byggða á Íslandi og stuðla þannig að umhverfisvænni, öruggari og þjóðhagslega hagkvæmari umferð um allt land.
Sigurður Ingi segir stefnuna rökrétt framhald af nýrri samgönguáætlun sem Alþingi hefur samþykkt. Í grein sem ráðherra skrifaði í Fréttablaðið í dag segir: „Sterkt almenningssamgöngukerfi um land allt, sem tengir saman byggðakjarna landsins og höfuðborgarsvæðið við landsbyggðina, er forsenda þess að jafna stöðu landsmanna og færa okkur nær hvert öðru. ... Nýrri stefnu ríkisins um almenningssamgöngur sem mótuð hefur verið í fyrsta sinn er ætlað að tryggja að þær verði raunhæfur valkostur fyrir alla landsmenn.“