„Menningin sjálf, viðhorfin, hefur þokað veröldinni í þá átt, að upplýst fólk í nútímanum hefur komist að þeirri niðurstöðu að auðvitað sé það ekki æskilegt að faðirinn láti sig hverfa. Það er ákaflega gamaldags viðhorf til fjölskyldumála, að ímynda sér það að við sambúðarslit eigi móðirin ein að axla ábyrgð á börnunum, en faðirinn eigi að láta nægja að borga meðlag og sé að öðru leyti stikkfrí. En svona hugsar kerfið. Enn í dag, þrátt fyrir þessar miklu samfélagsbreytingar, sendir kerfið körlum þessi skilaboð: Farðu bara. Leigðu þér risíbúð. Vertu á barnum. Haltu áfram að leika þér. Borgaðu meðlag.“
Þetta er meðal þess sem Guðmundur Steingrímsson skrifar í pistli í Fréttablaðinu um hvernig kerfið á Íslandi lítur á hlutverk feðra, enn þann dag í dag.
Hann segir litlar sem engar kerfisbreytingar hafa átt sér stað til að koma til móts við hina breyttu veröld. „Í lögunum skal barn alltaf búa á einu heimili – sem er yfirleitt hjá móður – þótt sannanlega sé veröldin alls ekki þannig.“
„Spilaður er lúalegur feluleikur til þess að verja þessa fornu samfélagsmynd. Einstæðir foreldrar fá að sjálfsögðu barnabætur. En vegna þess að börn mega einungis vera skráð á einu heimili, þá eiga börn alltaf bara eitt einstætt foreldri. Aldrei tvö. Yfirleitt eru þó foreldrin tvö. Í bókum kerfisins eru einstæðir feður eiginlega ekki til. Börnin eru ekki skráð með lögheimilið hjá þeim. Þeir eru því skráðir einstæðingar. Kerfið segir að þeir eigi ekki börn. Þeir eru því ekki studdir,“ skrifar Guðmundur einnig.
Guðmundur lýsir þessum hóp sem fátækasta fólki landsins. „Fáir hafa það jafnskítt og tekjulágir, eignalitlir feður sem vilja þó allt gera til þess að taka þátt í uppeldi barna sinna. Þeir fá engan stuðning, heldur þvert á móti. Þeir þurfa að borga. Alveg sama þótt verkalýðsforysta blási í herlúðra gegn fátækt og ríkisstjórn hækki stuðning við foreldra, þá skal þessi hópur – feður – grafinn og gleymdur. Viðhorfið er augljóst og merkilega kuldalegt: Þeir mega éta það sem úti frýs.“