Í Snæfellsbæ hefur sjávarútvegurinn verið burðarstoðin og mikil útgerð hjá stórum sem smáum bátum. Snæfellsbæ rekur þrjár hafnir í Ólafsvík, á Rifi og á Arnarstapa. Um hundrað bátar landa í höfnunum daglega þegar mest lætur í strandveiðum á sumrin.
Í fjórða þættinum um hafnir landsins eru hafnirnar heimsóttar og rætt við hafnarstjórann Björn Arnaldsson og einnig við bæjarstjóra Snæfellsbæjar, Kristinn Jónasson á Hellissandi. Gríðarleg áhersla er lögð á að gera hafnirnar að fallegu útivistarsvæði og sérstaklega hefur verið nostrað við höfnina í Ólafsvík og svo er hin náttúrulega fegurð í kringum Arnarstapa eintök - en höfnin er smá og grunn en í heillandi umhverfi sem dregur ekki síður að ferðamenn.
Þátturinn er frumsýndur Kl.21.30 á mánudagskvöldum og svo endursýndir. Þættirnir eru í umsjón Lindu Blöndal og Friðþjófs Helgasonar.