Leiðtogaráð Evrópusambandsins hefur veitt Theresu May, forsætisráðherra Bretlands, aukinn tveggja vikna frest svo hún geti freistað þess í þriðja skipti að koma útgöngusamningi sínum vegna Brexit í gegnum þingið. Bretland mun því ekki yfirgefa ESB sjálfkrafa án samnings þann 29. mars. Viðskiptablaðið greinir frá.
Leiðtogaráðið tók þessa ákvörðun í gær og tilkynnti May að ef þingið samþykki ekki útgöngusamning hennar í næstu viku hafi hún frest til 12. apríl til þess að reyna að ná honum í gegn. Þingið hefur þegar hafnað samningi hennar tvisvar og sömuleiðis hafnað útgöngu án samnings.
Ef May tekst ekki að fá þingið til að samþykkja útgöngusamning sinn mun hún neyðast til þess að óska eftir enn frekari frest.