Erna Kristín samfélagsmiðlastjarna og guðfræðingur hefur undanfarið unnið mikið í því að efla jákvæða líkamsímynd kvenna. Það hefur hún gert með því að tala opinberlega um sín vandamál úr fortíðinni er varða átröskun ásamt því að vera dugleg að birta reglulega myndir af sjálfri sér sem eru náttúrulegar og óunnar.
Erna spurði í dag á Instagraminu sínu, Ernuland hvað það væri sem konur mættu? Gaf hún Hringbraut góðfúslegt leyfi til þess að birta spurningalista sinn:
„Má kona ?
Má kona hafa líkama án þess að hann sé mælistika á verðleika hennar ?
Má kona vera menntuð & með brjóstaskoru?
Má kona lyfta lóðum án þess að heyra að hún sè of mössuð ?
Má kona vera ljóshærð án þess að teljast heimsk ?
Má kona vera fáklædd og ekki að biðja um það?
Má kona gráta án þess að vera greinilega á túr?
Má kona vera kynþokkafull án þess að vera dæmd ?
Má kona velja það að vinna og vera góð mamma ?
Má kona vera feit án þess að vera búin að missaða?
Má kona vera til án þess að þurfa stöðugt að verja ímynd sína ?
Má kona pósta rassamynd án þess að vera athyglissjúk?
Má kona njóta kynlífs án þess að vera lauslát?
Má kona segja nei án þess að vera tussa?
Má kona ?
Kveðja fáklædda konan sem er búin með prestanám og vinnur með líkamsvirðingu á samfèlagsmiðlum og er bara ekki alltaf viss ? Má kona ?“