Borgarbókasafnið í Sólheimum mun bjóða hjólaeigendur velkomna að koma með hjólin sín í fría ástandsskoðun hjá Dr. Bæk laugardaginn 25. maí næstkomandi á milli kl. 12:00 til 14:00. Doktorinn kemur með farandskoðunarstöðina sína, pumpu, olíur og nokkra skiptilykla, skoðar hjólin og vottar heilsu þeirra ásamt því að fara yfir festingar á hjálmum. Allir eru velkomnir með hjólið sitt og mun Dr. Bæk svara alls konar spurningum um hvernig eigi að halda hjólum. Borgarbókasafnið er staðsett í Sólheimum 27 í Reykjavík.
Er hjólið þitt tilbúið fyrir sumarið? kíktu með það í fría ástandsskoðun
Fleiri fréttir
Nýjast
Náttfari
Stórmenni kveður
Dagfari
Sigurvegarar kjarasamninganna
Dagfari