Lífeyrissjóðirnir hafa leikið lykilhlutverk í endurreisn íslensks hlutabréfamarkaðar sem þurrkaðist nánast út við fjármálahrunið. Eftir að hafa fyrst komið að fjárhagslegri endurskipulagningu margra stærstu fyrirtækja landsins urðu þeir einnig langsamlega fyrirferðarmestu fjárfestarnir á hlutabréfamarkaði. Þær ástæður eru vel þekktar. Fjármagnshöft og skortur á einkafjárfestum réðu hvað mestu um en sjóðirnir eiga samanlagt liðlega helming í öllum félögum í Kauphöllinni. Þótt þær fjárfestingar hafi, þegar á heildina er litið, skilað lífeyrissjóðunum ágætri ávöxtun, þá eru nú blikur á lofti.
Vaxandi erlend samkeppni ásamt gríðarmiklum launakostnaði kallar á rekstrarlega endurskipulagningu hjá mörgum fyrirtækjum. Staðan hjá Icelandair, þar sem hlutfall launakostnaðar af tekjum hefur aukist ört og er umtalsvert meira en meðal helstu keppinauta, er ekkert einsdæmi. Fyrir lífeyrissjóðina, sem vita oft og tíðum ekki hvort þeir eigi að vera virkir eða óvirkir hluthafar, er þetta ný staða sem mun reyna mjög á getu og ábyrgð þeirra sem stærstu eigenda flestra skráðra félaga. Meira af því sama, þar sem lífeyrissjóðirnir veita stjórnendum ekki nægjanlega mikið aðhald, er ekki í boði. Afleiðingin hefur verið sú að mörg félög eru án virkra eigenda, með skýra sýn á hverju þurfi að breyta og hvað bæta, sem tryggja að stjórnendur séu látnir gjalda þess þegar reksturinn stendur ekki undir væntingum. Við núverandi aðstæður hefur sjaldnast verið brýnna að vinda ofan þessari þróun.
Nánar á
https://www.frettabladid.is/skodun/enginn-vi-stri