„Þeir sem eru borgarfulltrúar í sveitarstjórn hafa oft hagsmuna að gæta eða tengjast öðru. Þeir eiga fyrst og fremst að geta þess, það er það sem er aðalmálið og gæta þess að hagsmunir skarast ekki,“ segir Eyþór Laxdal Arnalds, borgarfulltrúi og oddviti Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík, þegar hann er spurður út í tengsl sín við Morgunblaðið.
Eyþór var gestur Kristjáns Kristjánssonar í þjóðmálaþættinum Sprengisandi.
Eyþór er ennþá hluthafi í Árvakri. Spurður hvort þessi tengsl dragi ekki úr trúverðugleika hans sem stjórnamálamanns svarar Eyþór:
ll tengsl eru náttúrulega þannig að þau sé hægt að gera þau tortryggileg ef menn vilja en aðalmálið er að þau séu upp á borðunum og að menn viti af þeim. Það er ekkert leyndarmál hvar ég tengist. Ég reyni bara að passa að það sé skýrt og aðskilið.“
Nánar á visir.is